Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011
24.2.2011 | 22:20
Arðgreiðsla úr þrotabúi Landsbankans
Í gær heltust yfir okkur fréttir af góðu gengi Iceland Foods keðjunnar í Bretlandi og hve mikið hún ætlaði að greiða í arð. Arðurinn átti samkvæmt fréttunum að stærstum hluta að renna til skilanefnda Landbanks og Glitnis. Þessi tíðindi voru sögð vera úr Liverpool Daily Post. Þau var flutt af fjölmiðlum og af Birni Val Gíslasyni, eins og um venjulagan arð (til hluthafa vegna hagnaðar af reglulegri starfsemi) væri að ræða. Fréttin var og borinn undir Pál Benediktsson upplýsingafulltrúa skilanefndar Landsbankans. Við fyrstu sýn mætti ætla að Páll staðfesti aðgreiðslufréttina, en í raun var hann háll sem áll og staðfesti ekki neitt. Í framhaldinu gaf Páll til kynna að auknar endurheimtur í þrotabú bankans væru af hinu góða (hvort það tengist Iceland Foods er óráðið). Undir þetta tek ég heilshugar. Vil þó endilega heyra meira um auknar endurheimtur, í smáatriðum, en ekki bara að þær sé góðar.
Skoðum aðeins frétt Liverpool Daily Post. Mín þýðing myndi vera á þessa leið (ekki er alveg öruggt að ég sé eins klár í ensku og fréttamenn vísis og rúv):
Matvörukeðjan Iceland Foods ætlar að losa GBP 330 milljónir af eigin fé til að greiða út til eigenda.
Ekkert um arðgreiðslu. Ég er ekkert sérstaklega að draga í efa að góð rök séu fyrir þessum "eiginfjárdrætti" eigenda Iceland Foods, en hinsvegar er rangt að flytja fréttir af þessu eins búast megi við öðru eins á hverju ári. 2010 var langbesta ár IcelandFoods frá upphafi. Hagnaður ársins var á bilinu 100 - 150 milljón GBP (finn ekki áreiðanlegar upplýsingar enda um einkafyrirtæki að ræða, kannski Páll viti það). Eðlilegur arður er einhversstaðar þar fyrir neðan.
Í hádegisfréttum RÚV í dag var svo sagt að arðgreiðsla Iceland Foods verði um GBP 100 milljónir, sem þýðir að arður til skilanefnda á Íslandi verður í kringum 15 milljarðar króna en ekki kringum 50 milljarðar eins og skilja mátti af fyrri fréttum. Haft er eftir Malcolm Walker forstjóra Iceland Foods að ólíklegt sé að Iceland Foods geti aukið hagnað sinn með sama hraða og undanfarið. Einnig var eftir honum haft að frétt Liverpool Daily Post sé fjarri því að vera nákvæm.
Ég er ekki viss um að fréttir vísis og rúv hafi verið bornar undir Walker. Kannski þær hafi verið nákvæmari.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2011 | 22:22
Hæstiréttur - Fátt er svo með öllu illt
Ógilding hæstaréttar á stjórnlagaþingskosningunni hefur farið fyrir brjóstið á mér eins og mörgum öðrum. Í dag sé ég hinsvegar nokkurn ábata af ákvörðun hæstaréttar. Tíminn sem liðið hefur og það sem á daga þjóðarinnar hefur drifið hefur gefið mörgum frambjóðendum til stjórnlagaþings tækifæri til að kynna sig frekar fyrir kjósendum. Margir þeirra hafa nýtt atburði síðustu vikna, og sérílagi síðustu daga, til að sýna kjósendum að sú lýðræðisást sem þeir játuðu í framboðskynningu er í rauninni ekki til staðar. Þeir afsaka sig margir, en það er satt best að segja þunnur þrettándi, að fullu og öllu gegnsær.
Það góða við þetta er að raunverulegir lýðræðisunnendur geta látið þessa frambjóðendur afskiptalausa þegar kosningar verða endurteknar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Mínir tenglar
Af mbl.is
Fólk
- Kaleo gefur út lag eftir þriggja ára pásu
- Ítarlegri og krítískari skoðun
- DiCaprio sagður hafa beðið kærustunnar
- Foreldrar Katrínar eru kletturinn í lífi hennar
- Harry nefndur á nafn í kæru gegn Diddy
- Svipt allri von og tímaskynjun
- Það versta sem ég hef upplifað
- Iggy Azalea hefur sagt skilið við tónlistina
- Kidman kvaddi rauða hárið
- Hnoðri verði árviss viðburður á Húsavík
Íþróttir
- Glæsimark Amöndu tryggði Valssigur
- Alonso fer hvergi
- Breiðablik aðeins með tvo varamenn
- Ungur Akureyringur til nýliðanna
- Portúgalinn líklegur eftirmaður Klopps
- Tímabil Skagamannsins búið eftir tæklinguna ljótu
- Karlar: Félagaskiptin í íslenska fótboltanum
- Viðar Örn til Akureyrar
- Fyrrverandi stjóri United orðaður við Bayern
- Verður lærisveinn Hannesar