2.8.2012 | 22:08
Blóðrautt sólarlag í Svíþjóð 1977 og 2012.
Sumarið 1977 dvaldi ég í Svíaríki. Þeir voru kræfir í skattheimtu og ég held að þeir skuldi mér enn endurgreiðslu skatta frá þeim tíma. Þá um sumarið var kvöld eitt sýnd íslensk sjónvarpsmynd í sænska ríkissjónvarpinu. Daginn eftir var dómur um myndina í einhverju sænsku dagblaðana og fyrirsögnin var þessi (ef ég man rétt): Enn einu sinni fá Íslendingar að eyðileggja kvöldið fyrir Svíum. Ég held að myndin sem eyðilagði kvöldið í Svíþjóð hafi verið "Blóðrautt sólarlag".
Þetta er nú það sem mér kom í hug eftir að Íslendingar eyðilögðu kvöldið fyrir Svíum enn á ný réttum 35 árum eftir að hin fleygu orð birtust á prenti. Þeir geta sem best endurprentað þau í fyrramálið. Áfram Ísland.
PS. ef einhver les þetta löngu eftir ritun, þá er það sigur Íslands á Svíþjóð í riðlakeppni Ólympíuleikanna í London 2012 sem eyðileggur kvöldið fyrir Svíum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.