Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010
1.12.2010 | 19:42
Er fylgi Þorvaldar nú minna en Davíðs á hátindi?
Vefurinn amx.is er ekki að gera sér rellu útaf muninum á eplum og appelsínum. Þar eru mörg innlegg þar sem gert er lítið úr fylgi kjörinna fulltrúa á stjórnlagaþing. Langmest fylgi hlaut eins og öllum er kunnugt Þorvaldur Gylfason. Rétt er einnig að rúmlega þrjú prósent kosningabærra manna settu hann í fyrsta sæti. Gleymum ekki að uþb 8,7% allra sem greiddu atkvæði settu Þorvald í fyrsta sæti. Við vitum ekki, og verðum etv ekki upplýst um, hversu margir voru með Þorvald Gylfason einhversstaðar á kjörseðli sínum. Ég yrði hissa ef nafn hans var ekki einhversstaðar á meira en helmingi kjörseðla (ég mynd veðja á 65-70%). Væri ekki rétt að amx.is reyndi að reikna úr listakosningakerfi yfir persónukosningakerfi með jafn einföldum trixum. Fengju þá fulltrúar 30% lista í 12 þingmanna kjördæmi 360% fylgi? flott ef satt væri. Nei staðreyndin er að meðan Þorvaldur Gylfason er með tæp 9% greiddra atkvæða þá eru efstu menn í Alþingiskosningu með (lauslega áætlað) c.a. 1.5-2% greiddra atkvæða að baki. Ef við fækkuðum Alþingismönnum um helming þá þyrfti 3-4% atkvæða að baki hverjum.
Svarið er því ótvírætt ef leggja á kosningakerfin að jöfnu (sem er ekki hægt að gera athugunarlaust), þá er fylgi Þorvaldar meira en dæmi eru um í kosningum til Alþingis og líklega myndi þetta gilda þó Alþingismönnum væri fækkað um helming (niður í fjölda stjórnlagaþingsmanna).
Svo er auðvitað hægt að gagnrýna þetta innlegg því hér eru líka epli og appelsínur.
Samt stendur það eftir að fylgi Þorvaldar er líklega einstakt.
PS. Mér sýnist að 72734,81672 atkvæði hafi nýst af 82.335 gildum atkvæðum, þannig að Þorvaldur var með ríflega 10% nýttra atkvæða í fyrsta sæti.