Björn Ragnar Björnsson
- Stærðfræðingur frá HÍ.
- Framhaldsnám í tölvunarfræði í University of Alberta.
- Framhaldsnám í hagfræði í HÍ.
- Hef mest starfað við forritun og kerfishönnun frá 1978, m.a.: Reiknistofnun HÍ, Hafrannsóknastofnunin, Flugmálastjórn, Alþingi, Halo, Kögun og á eigin vegum.
- Nú á Hagstofunni við þjóðhagsspá.
Þjóðfélagsrýnir og "nær óþekktur örlagaþrasari" sem heldur að hanns tími sé kominn.
Þjóðinni er lífsnauðsynlegt að ná til sín yfirráðum í eigin málum. Elstu menn rekur varla minni til tíma þar sem atkvæði hins almenna borgara var meira en glósa á spássíu í bókum flokkana. Þetta er á haus! Kjósendur eiga að glósa flokkana en ekki öfugt. Tökun það vald í okkar hendur sem við eigun en flokkarnir telja sig umborna að skammta okkur (þ.e.a.s. ekki).
Hefur einhver heyrt minnst á hugtökin (sem er nú reyndar systkini): Réttlæti og Sanngirni?
Ætla menn að segja að hrunið samfélag sé með svo góð lög að þau þurfi ekki endurskoðun?
Menn geti bara haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist.