Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2013
28.1.2013 | 12:46
Fjárkúgun og handrukkun ríkisstjórna Norðurlandanna gagnvart Íslandi.
Réttlætið náði fram að ganga í máli Eftirlitsstofnunnar EFTA ofl gegn Íslandi vegna innistæðutrygginga, "Icesave" málinu, með fullum sigri Íslands.
Nauðsynlegt er að einhverjir mátulega stífir fjölmiðlamenn láti forsvarsmenn ríkistjórna Norðurlandanna fjögurra skýra til hlítar hvers vegna löndin tóku að sér ömurlega og lágkúrulega fjárkúgun og handrukkun í Icesave málinu fyrir bullurnar í Bretlandi og Hollandi.
Eftir að Ísland hafði samið við AGS átti að koma Íslandi í sjálfheldu með því að lán Norðurlandanna til Íslands, sem voru hluti af efnahagsáætluninni voru skilyrt því að Ísland hefði samið við Breta og Hollendinga um Icesave. AGS sem lét eins Icesave málið væri sér óviðkomandi "gat" því ekki lokið endurskoðun áætlunarinnar, vegna vöntunar á virkum lánsloforðum frá Norðurlöndum. Catch-22.
Það hefur, að ég hygg, ekki komið frambærileg skýring á því hvernig svokallaðar "frændþjóðir" okkar gátu lagst svo lágt.